Verðið er aðeins 6.000 kr. fyrir námskeiðið. Leiga á hestum og annað þess háttar er þar ekki innifalið.
Hér sláum við upp stuttu námskeiði með dálítið stuttum fyrirvara en vonum að sem flestir geti samt komið og haft gagn og gaman að.
Til stendur að Elvar Logi Friðriksson komi aftur í Búðardal í fyrstu vikunni í ágúst. Tíminn kostar 10.000 krónur með öllu. Áhugasamir hafi samband við Alessu á facebook/messenger eða í síma 839 6575.
Hestaþinginu er lokið og niðurstöður eru komnar inn á mótasíðuna okkar.
Ákveðið hefur verið að mótið á morgun hefjist kl. 11 en ekki kl. 10 eins og áður hafði verið auglýst. Auglýsingin hér neðar á síðunni hefur verið leiðrétt að þessu leiti.
Gæðingatölt:
Unglingaflokkur:
Barnaflokkur:
B-flokkur ungmenna:
B-flokkur gæðinga:
A-flokkur gæðinga:
Frestur til að skrá sig á hestaþingið okkar á laugardag hefur nú verið framlengdur til kl. 22 í kvöld. Skráningar eru ekki margar en við viljum samt endilega halda mótið svo nú er um að gera að taka þátt!
Hestaþing Glaðs verður haldið á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 25. júní næstkomandi. Mótið hefst kl. 11:00 og er opið öllum félögum í hestamannafélögum.
Dagskrá:
Kl. 11:00 Forkeppni
1. Gæðingatölt opinn flokkur
2. Unglingaflokkur
10 mínútna hlé
3. Barnaflokkur
4. B-flokkur ungmenna
5. B-flokkur gæðinga
15 mínútna hlé
6. A-flokkur gæðinga
MATARHLÉ
Úrslit og skeið
1. Gæðingatölt
2. Unglingaflokkur
3. Barnaaflokkur
4. B-flokkur ungmenna
10 mínútna hlé
5. A-flokkur gæðinga
10 mínútna hlé
6. B-flokkur gæðinga
7. 100 m skeið með fljúgandi starti
Athugið að öll dagskráin er háð þátttöku í hverjum dagskrárlið og auglýst hér með fyrirvara um breytingar.
Bendum á að Dalakot verður með pizzahlaðborð í matarhléinu.
Skráningar fara fram í skráningakerfi SportFengs eins og venjulega (sportfengur.com og smella á Skrá sig á mót eða námskeið). Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar koma fram í lok skráningarferlisins.
Skráningargjald er kr. 2.000 í barnaflokk og unglingaflokk en kr. 3.000 í ungmennaflokk, B-flokk, A-flokk og tölt.
Skráningar þurfa að berast fyrir kl. 20:00 að kvöldi miðvikudagsins 22. júní. Sami tímafrestur gildir um greiðslu skráningagjalda. Tekið verður við skráningum í skeiðið á mótsstað.
Ef þið hafið einhverjar fyrirspurnir varðandi skráningu þá getið þið haft samband við Þórð í síma 893 1125 eða með netfangi thoing@centrum.is.
Ráslistar verða birtir hér á vef Glaðs föstudaginn 24. júní.
Þann 11. júní næstkomandi verður stefnan sett á Suðurlandið í skemmtiferð. Heimsækjum góða staði, m.a. förum við að Feti til dalabræðranna Sigvalda Lárusar og Ólafs Andra. Einnig verður kíkt í Halakot til Bjarkar okkar Guðbjörnsdóttur.
Fleiri staðir verða auglýstir síðar og sömuleiðis öll nánari tilhögun ferðarinnar og verð.
Takið daginn frá!
Skemmtinefnd (neistih@gmail.com) vill gjarna heyra frá þeim sem eru áhugasamir fyrir 7. júní.
A flokki gæðinga – B flokki gæðinga – Barnaflokki – Unglingaflokki – Ungmennaflokki.
Athugið sérstaklega að fyrri og seinni umferð verða keyrð eins og sitthvort mótið sitt hvorn daginn, 4. og 5. júní. Það þarf að skrá sig á annað eða bæði mótin óháð hinu og skráningarfrestur rennur út samtímis fyrir bæði mótin. Sem sagt, það er ekki hægt að sjá til hvernig gengur í fyrri umferð og ákveða þá hvort maður skráir sig i seinni umferðina. Einungis er um forkeppni að ræða, ekki riðin úrslit.
Seinni daginn verður röð keppnisgreina þessi: A-flokkur, B-flokkur, barnaflokkur, unglingaflokkur og ungmennaflokkur - B-flokkur.
Skráningar þurfa að hafa borist fyrir kl. 23:59 miðvikudaginn 31. maí næstkomandi og skráningagjöld þarf að greiða innan sama tímafrests. Senda kvittun á olafur@fsn.is.
Unnt verður að leigja stíur fyrir keppnishesta í reiðhöllinni Faxaborg, hafið samband við Eyþór Gíslason í 898 1251.
Nánari upplýsingar um mótið gefa Eyþór Gíslason, Ása Hólmarsdóttir, Valberg Sigfússon og Herborg Sigurðardóttir.
Skemmtinefnd og formaður Glaðs (lesist: Gyða og Valberg) hafa ákveðið að nú sé kominn tími til að bregða sér í reiðtúr og grilla á eftir.
Næstkomandi föstudag. 29.apríl kl 18.00 leggjum við á og bregðum við okkur í ca. kukkutíma reiðtúr frá hesthúsahverfinu. Síðan kveikjum við upp í grillinu og borðum í reiðhöllinni. Hver kemur með sitt að borða og drekka, það væri líka sniðugt að koma með útilegustólana eða annað það sem eykur á þægindin.
Engar skráningar eða vesen - bara mæta! Allir velkomnir.
Því miður verður ekkert af íþróttamótinu sem halda átti þann 1. maí næstkomandi.
Við verðum því miður að aflýsa vetrarleikunum sem halda átti á morgun vegna ónógrar þátttöku.
Vetrarleikarnir fara fram á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 16. apríl og hefst mótið stundvíslega klukkan 11:00.
Dagskrá:
Forkeppni
Tölt:
pollaflokkur frjáls aðferð
barnaflokkur T7
unglinga- og ungmennaflokkur T3
opinn flokkur T3
Fjórgangur:
opinn flokkur V2
barnaflokkur V5
unglinga- og ungmennaflokkur V2
Fimmgangur:
opinn flokkur F2
Úrslit
Tölt: barnaflokkur, unglinga- og ungmennaflokkur og opinn flokkur
Fjórgangur: opinn flokkur, barnafl., unglinga- og ungmennafl.
Fimmgangur: opinn flokkur
Takið eftir að í barnaflokki verður keppt í V5 (frjáls ferð á tölti, brokki, feti og stökki) og í T7 (hægt tölt og tölt á frjálsri ferð).
Skráningar:
Eins og áður skrá keppendur sig með Skráningakerfi SportFengs. Þurfi einhver aðstoð við skráningar er sjálfsagt að hafa samband við:Þórð í 893 1125 eða thoing@centrum.is
Gjaldið er kr. 1.500 á skráningu. Skráningafrestur er til miðnættis fimmtudagskvöldið 14. apríl og sami frestur gildir um greiðslu skráningagjalda. Í pollaflokkinn er skráð á staðnum og þar eru engin skráningagjöld.
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Dalabúð þriðjudaginn 19. apríl kl. 20:00.
Dagskrá:
Athugið að mótið hefst kl. 16:00 eins og auglýst hefur verið.
Barnaflokur:
1. holl: Lauga Björg Eggertsdóttir og Lokkur frá Klifmýri
Unglingaflokkur:
1. holl: Dagný Þóra Arnarsdóttir og Óðinn frá Geirmundarstöðum
Ungmennaflokkur:
1. holl: Sigríður Ósk Jónsdóttir og Rispa frá Gillastöðum
Fullorðinsflokkur:
1. holl: Jón Ægisson og Ester frá Gillastöðum
1. holl: Einar Hólm Friðjónsson og Staka frá Högnastöðum 2
2. holl: Arrnar Þór Ólafsson og Leistur frá Geirmundarstöðum
2. holl: Jóhanna Ösp Einarsdóttir og Ameríka frá Fremri-Gufudal
3. holl: Styrmir Sæmundsson og Kata frá Fremri-Gufudal
3. holl: Signý Hólm Friðjónsdóttirog Tígulás frá Hallsstöðum
4. holl: Eyrún Agnarsdóttir og Roka frá Hallsstöðum
4. holl: Janne Schmitz og Fjöl frá Búðardal
5. holl: Svanborg Einarsdóttir og Glanni frá Gillastöðum
5. holl: Edda Unnsteinsdóttir og Stormar frá Syðri-Brennihól
6. holl: Carolin Baare-Schmidt og Gjóska frá Búðardal
6. holl: Viðar Þór Ólafsson og Fjarki frá Vatni
7. holl: Skjöldur Orri Skjaldarson og Skjaldborg frá Búðardal
Keppt verður í tölti T7 í Nesoddahöllinni laugardaginn 12. mars og hefst keppni kl. 14:00.
Dagskrá (með fyrirvara um þátttöku):
Pollar (klárað alveg)
Barnaflokkur - forkeppni
Unglingaflokkur - forkeppni
Ungmennaflokkur - forkeppni
Opinn flokkur - forkeppni
Hlé
Barnaflokkur - úrslit og verðlaun
Unglingaflokkur - úrslit og verðlaun
Ungmennaflokkur - úrslit og verðlaun
Opinn flokkur - úrslit og verðlaun
Fyrirkomulag:
Tveir eða fleiri knapar keppa í einu.
Knapi velur upp á hvora hönd hann hefur keppni - raðað í holl eftir því.
Þulur stýrir forkeppni og úrslitum
Forkeppni:
Hægt tölt, svo snúið við
Frjáls ferð á tölti
Úrslit:
Hægt tölt og svo snúið við
Frjáls ferð á tölti
Úrslit hefjast upp á vinstri hönd nema knapar komi sér saman um annað - efsti knapinn hefur tvöfalt vægi.
Skráningar:
Skráning er er með nýrri útgáfu af skráningakerfi SportFengs. Þar gildir að þeir sem eiga aðgang að SportFeng skrá sig inn með þeim aðgangi, aðrir gefa upp netfang og fá bráðabirgðaaðgang. Þarfnist einhver aðstoðar vegna skráninga er má hafa samband við Þórð í 893 1125 eða thoing@centrum.is eða Dórótheu í 848 6742 eða dorotheaunn@gmail.com.
Skráningargjald er 1.000 krónur og skráningarfrestur er til miðnættis á föstudaginn 11. mars. Pollar eru skráðir á mótsstað og greiða ekki skráningargjald.
Því miður verðum við að aflýsa þrígangsmótinu sem við ætluðum að halda á morgu. Skráningar voru fremur dræmar en hitt er eiginlega enn verra að nú virðist Covid faraldurinn vera að hellast yfir samfélagið okkar hér af miklum þunga. Því teljum við ekki skynsamlegt að halda mótið.
Keppt verður í þrígangi í Nesoddahöllinni laugardaginn 19. febrúar og hefst keppni kl. 14:00.
Dagskrá (með fyrirvara um þátttöku í öllum flokkum):
Fyrirkomulag þrígangsins:
Einn er í braut í einu í öllum flokkum.
Börn ríða 2½-3 hringi og sýna þrjú af þessum fjórum atriðum: 1 hring á tölti á frjálsum hraða, 1 hring á brokki, ½ hring á feti og 1 hring á stökki. Í úrslitum sýna þau fet, brokk og tölt. Lægsta einkunnin dettur út þannig að aðaleinkunn reiknast sem meðaltal tveggja bestu gangtegundanna.
Unglingar, ungmenni og fullorðnir ríða 3½ hring: ½ á feti, 1 á tölti á frjálsum hraða, 1 á brokki og 1 á stökki. Lægsta einkunnin dettur út þannig að aðaleinkunn reiknast sem meðaltal þriggja bestu gangtegundanna. Úrslitin verða eins.
Skráningar:
Skráning er með nýrri útgáfu af skráningakerfi SportFengs. Þar gildir að þeir sem eiga aðgang að SportFeng skrá sig inn með þeim aðgangi, aðrir gefa upp netfang og fá bráðabirgðaaðgang.
Athugið að þrígangur er ekki til í SportFeng svo við notumst við Fjórgang V6.
Þarfnist einhver aðstoðar vegna skráninga má hafa samband við Þórð í 893 1125 eða thoing@centrum.is.
Skráningargjald er 1.000 krónur og skráningarfrestur er til kl. 12 á hádegi föstudaginn 18. febrúar. Pollar eru skráðir á mótsstað og greiða ekki skráningargjald.
Mótanefnd hefur sett þessi mót á dagskrá á árinu:
19. febrúar: Þrígangur í reiðhöllinni kl.13:00
12. mars: Tölt í reiðhöllinni kl. 13:00
26. mars: Vetrarleikar á reiðvellinum
16.apríl: Vetrarleikar á reiðvellinum
1. maí: Opið íþróttamót
4.-5. júní: Sameiginleg landsmótsúrtaka félaganna á Vesturlandi
25. júní: Opið hestaþing Glaðs
Allt verður þetta auglýst nánar þegar nær dregur og við fylgjumst vel með gildandi sóttvarnareglum sem hugsanlega geta sett strik í reikninginn. LH hefur staðið sig mjög vel í því að setja skýrt fram þær takmarkanir sem að hestamennsku lúta, s.s. námskeiðum og notkun á reiðhöllum. Nýjustu reglur má ávallt finna hér: lhhestar.is/is/covid
Fræðslunefnd hefur nú lagt drög að tveimur námskeiðum.
Annars vegar verður haldið þriggja helga námskeið með Lindu Rún Pétursdóttur, reiðkennara. Kennt verður í reiðhöllinni þrjár helgar, bæði laugardag og sunnudag. Námskeiðið er ætlað fyrir alla aldurshópa. Fullorðnir 1-2 um hvern tima en börn geta verið fleiri saman. Helgarnar verða:
22.-23. janúar
12.-13. febrúar
5.-6. mars
Hins vegar er svo stefnt á námskeið á Skáney fyrir börn og unglinga 25.-27. febrúar með sama sniði og verið hefur undanfarin ár.
Nánari upplýsingar verða birtar á næstunni.