Þetta er millileið sem tengir saman leiðir 3 (um Langavatnsdal) og 5 (um Hítardal). Rétt sunnan við Sópandaskarð er farið upp með Mjóadalsá milli Þrúðufells og Fossmúla, áfram norðan Tröllakirkju og Lambahnúka og með Austurdalsá niður að norðurenda Hítarvatns.
GPS ferill yfir stærsta hluta leiðarinnar: Mjóidalur. Hér var farið inn Langavatnsdal og svo inn Mjóadal en í stað þess að fara niður Austurdal niður að Hítarvatni var farið í norður vestan við Smjörhnjúka, þá niður í Burstadal og svo áfram að Hóli í Hörðudal.
Bláar leiðir eru aðalleiðir, rauðar leiðir aukaleiðir og grænar þar sem ríða þarf á akvegi. Heil lína er teiknuð nákvæmlega, yfirleitt eftir GPS ferli en rofin lína er ekki nákvæm. Kort birt með leyfi frá Garmin á Ísklandi, Samsýn og Landmælingum Íslands.
|
|
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |