Frá Magnússkógum, Glerárskógum eða Ásgarði er farið og komið að Fáskrúð nokkru neðan við Ljárskógasel, vegurinn riðinn að selinu og svo niður í Laxárdal annaðhvort að Gillastöðum eða Sámsstöðum.
GPS ferill yfir 29b, hluta af 30 og hluta af 36. Farið var frá Sámsstöðum í Ljárskógasel, niður með Fáskrúð í Ljárskógarétt og þaðan fjörur í Hóla í Hvammssveit.
Bláar leiðir eru aðalleiðir, rauðar leiðir aukaleiðir og grænar þar sem ríða þarf á akvegi. Heil lína er teiknuð nákvæmlega, yfirleitt eftir GPS ferli en rofin lína er ekki nákvæm. Kort birt með leyfi frá Garmin á Ísklandi, Samsýn og Landmælingum Íslands.
|
|
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |