Frá Svarfhóli í Laxárdal er farið upp fjallið og yfir það. Farið er um hlið á mæðiveikigirðingu undir Bjarnarfelli og áfram hjá Hesthallarvatni en þaðan er vegarslóði niður að Smyrlhóli í Haukadal. Þetta er sennilega ekki gömul reiðleið en hefur verið mikið farin á undanförnum árum.
GPS ferill: Leiið 35.
Bláar leiðir eru aðalleiðir, rauðar leiðir aukaleiðir og grænar þar sem ríða þarf á akvegi. Heil lína er teiknuð nákvæmlega, yfirleitt eftir GPS ferli en rofin lína er ekki nákvæm. Kort birt með leyfi frá Garmin á Ísklandi, Samsýn og Landmælingum Íslands.
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |