Leiðin liggur upp úr Suðurárdal og niður í Bjarnadal. Sjálf Brattabrekka er sunnan megin, þ.e. niður í Bjarnadalinn og er þar bratt svo teyma skyldi hesta hvort sem farið er þar upp eða niður. Því miður tengist þessi leið ekki öðrum reiðleiðum.
GPS ferill: Gamla Brattabrekka.
Bláar leiðir eru aðalleiðir, rauðar leiðir aukaleiðir og grænar þar sem ríða þarf á akvegi. Heil lína er teiknuð nákvæmlega, yfirleitt eftir GPS ferli en rofin lína er ekki nákvæm. Kort birt með leyfi frá Garmin á Ísklandi, Samsýn og Landmælingum Íslands.
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |