Farið er frá Gillastöðum eða Sámsstöðum í Laxárdal fram dalinn og upp á Laxárdalsheiði en þar liggja Sölvamannagötur yfir í Hrútafjörð og koma niður hjá Fjarðarhorni. Sölvamenn að norðan fóru í sölvafjörur í Gilsfirði og fóru þá þessa leið og áfram Hálsagötur. |
|
Bláar leiðir eru aðalleiðir, rauðar leiðir aukaleiðir og grænar þar sem ríða þarf á akvegi. Heil lína er teiknuð nákvæmlega, yfirleitt eftir GPS ferli en rofin lína er ekki nákvæm. Kort birt með leyfi frá Garmin á Ísklandi, Samsýn og Landmælingum Íslands.
|
|
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |