Frá Ljárskógum er farið um fjörur inn í Hvammsfjarðarbotn en ef ekki er fjara má ríða bakkana. Komið er á land við Hofakur eða Skarfsstaði nema ef förinni er heitið að Hólum eða inn Sælingsdal en þá er farið upp með Laxá í Hvammssveit. Hér er hins vegar til umfjöllunar leiðin út á Fellsströn og er nú riðinn akvegurinn rétt út fyrir Kýrunnarstaði. Þar er tekinn fáfarnari vegur niður að Teigi og Ketilsstöðum. Síðan liggur slóð áfram með ströndinni hjá Skorravík og áfram uns komið er aftur á þjóðveginn við Skóga. Þá er riðinn stuttur kafli í "öfuga átt" að Hellu en þar er tekinn vegurinn upp í Efribyggð og honum fylgt hjá Svínaskógi, Lyngbrekku og Stóra-Múla. Komið er enn aftur á þjóðveginn kringum Strandir (Fellsströnd og Skarðsströnd) og honum fylgt um Klofning og í Skarð.
GPS ferill: Leið 36, 47 og 43. Hér var á tveim stöðum farið út af leið 36 þar sem farnar voru leiðir 47 og 43.
Bláar leiðir eru aðalleiðir, rauðar leiðir aukaleiðir og grænar þar sem ríða þarf á akvegi. Heil lína er teiknuð nákvæmlega, yfirleitt eftir GPS ferli en rofin lína er ekki nákvæm. Kort birt með leyfi frá Garmin á Ísklandi, Samsýn og Landmælingum Íslands.
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |