Frá hesthúsahverfi í Búðardal liggur reiðvegur ofan við þorpið og svo með þjóðveginum. Eftir að komið er yfir ána Ljá færist reiðvegurinn fjær akvegi og nær sjónum og liggur að Ljárskógarétt.
GPS ferill:Búðardalur - Ljárskógar.
Bláar leiðir eru aðalleiðir, rauðar leiðir aukaleiðir og grænar þar sem ríða þarf á akvegi. Heil lína er teiknuð nákvæmlega, yfirleitt eftir GPS ferli en rofin lína er ekki nákvæm. Kort birt með leyfi frá Garmin á Ísklandi, Samsýn og Landmælingum Íslands.
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |