Frá Kleifum í Gilsfirði er farið upp nokkuð brattan sneiðing hjá Hafurskletti og áfram upp eftir slóðum, farið norðan við Krossárvatn, niður Krossárdal að Einfætingsgili og komið niður í Bitrufjörð rétt norðan við Óspakseyri.
GPS ferill: Bitruháls og Krossárdalur. Leiðin yfir Bitruháls fylgir hér með því farið var frá Stóra-Fjarðarhorni í Kollafirði, yfir Bitruháls, niður hjá Grafargili, inn Krossárdal og niður hjá Kleifum.
|
|
Bláar leiðir eru aðalleiðir, rauðar leiðir aukaleiðir og grænar þar sem ríða þarf á akvegi. Heil lína er teiknuð nákvæmlega, yfirleitt eftir GPS ferli en rofin lína er ekki nákvæm. Kort birt með leyfi frá Garmin á Ísklandi, Samsýn og Landmælingum Íslands.
|
|
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |