Riðið er inn Litla-Langadal, um Flatir niður í Hnappadal að Höfða eða Ytra-Rauðamel. Frá bænum Litla-Langadal að Ytra-Rauðamel eru 24 km.
GPS ferill yfir hluta leiðarinnar: Kolviðarnes - Litli-Langidalur Hér er farið frá Kolviðarnesi á Löngufjörum, norður hjá Höfða, norður Flatir og Litla-Langadal að bænum Litla-Langadal en þar ekki haldið áfram leið 7 heldur tekin leið 13 yfir á leið 11 að Bíldhóli.
Bláar leiðir eru aðalleiðir, rauðar leiðir aukaleiðir og grænar þar sem ríða þarf á akvegi. Heil lína er teiknuð nákvæmlega, yfirleitt eftir GPS ferli en rofin lína er ekki nákvæm. Kort birt með leyfi frá Garmin á Ísklandi, Samsýn og Landmælingum Íslands.
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |